Skilmálar

Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum og gjafabréfum sem keypt eru á vefsíðunni granitsmidjan.is. Með því að ganga frá kaupum samþykkir kaupandi skilmálana.

Seljandi

Vörur og verð

Hönnunarvörurnar okkar eru unnar úr náttúrusteini. Þar sem um náttúrulegt efni er að ræða er hvert eintak einstakt og litur, áferð og mynstur geta verið frábrugðin myndum á vefnum. Það telst ekki galli.

Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verði og leiðrétta augljósar villur, t.d. vegna rangrar verðmerkingar. Vörur eru framleiddar í takmörkuðu magni og ef vara reynist uppseld eftir að greiðsla hefur borist höfum við samband og endurgreiðum að fullu.

Greiðsla

Greitt er með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslusíðu Teya. Granítsmiðjan fær aldrei aðgang að kortaupplýsingum kaupanda. Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur borist.

Afhending og sendingar

Skilaréttur og jólaskil

Kaupandi hefur 14 daga frá móttöku vöru til að falla frá kaupum, án þess að tilgreina ástæðu, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Tilkynna skal um það á granitsmidjan@granitsmidjan.is. Vöru skal skila ónotaðri og í upprunalegu ástandi. Við endurgreiðum kaupverð innan 14 daga frá því að varan hefur borist okkur aftur. Kaupandi ber kostnað af endursendingu.

Jólaskil: Vörur sem keyptar eru fyrir jól 2026 má skipta til og með 30. janúar 2027, svo framarlega sem varan er ónotuð og í upprunalegu ástandi.

Gallaðar vörur

Ef vara reynist gölluð gilda ákvæði laga nr. 48/2003 um neytendakaup. Hafið samband sem fyrst eftir að galli kemur í ljós og við finnum lausn, viðgerð, nýja vöru eða endurgreiðslu.

Gjafabréf

Gjafabréf Granítsmiðjunnar gilda í 5 ár frá útgáfudegi og má nota upp í hönnunarvörur og borðplötur og aðra sérsmíði. Gjafabréfum er ekki hægt að skipta í peninga. Gjafabréf fæst ýmist sent í tölvupósti eða útprentað í umslagi, sent heim eða sótt í Smiðsbúð 3.

Persónuupplýsingar

Við vinnum aðeins með þær upplýsingar sem þarf til að afgreiða pöntun, þ.e. nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang. Upplýsingarnar eru ekki afhentar þriðja aðila nema eftir því sem þarf til að afhenda vöruna (t.d. Póstinum).

Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Ágreiningsmál sem kunna að koma upp skal reyna að leysa í sátt. Neytendur geta einnig leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Takist það ekki skal reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Skilmálar þessir gilda frá 12. nóvember 2026.