Algengar spurningar
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um borðplötur og sérsmíði úr náttúrustein. Finnurðu ekki svarið? Hafðu samband í síma 571 4300 eða á granitsmidjan@granitsmidjan.is.
Hvaða steinn hentar best í eldhúsborðplötu?
Kvartssteinn og granít eru vinsælustu efnin í eldhús. Bæði eru sterk, þola mikið álag og eru auðveld í viðhaldi. Kvartssít er góður kostur fyrir þá sem vilja útlit marmara en meiri hörku (7–8). Marmari og travertine eru mýkri steinar sem þurfa meiri umhirðu, en gefa einstakt og hlýlegt útlit.
Hver er munurinn á kvartssteini og kvartssíti?
Kvartssteinn er um 95% náttúrulegur steinn sem er mulinn og pressaður saman við um 5% epoxý. Hann er jafn í lit og mjög auðveldur í viðhaldi. Kvartssít er hreinn náttúrusteinn sem myndast þegar sandsteinn umbreytist við hita og þrýsting. Hver plata er einstök og steinninn er mjög harður.
Hentar marmari í eldhús?
Já, en marmari er mýkri en granít og kvartssteinn. Sýrur eins og sítrónusafi og edik geta skilið eftir sig daufa bletti á yfirborðinu. Margir velja marmara einmitt vegna þess að hann fær á sig fallega áferð með tímanum. Ef þú vilt sem minnst viðhald mælum við frekar með kvartssteini eða kvartssíti.
Hvað kostar borðplata úr steini?
Verðið fer eftir steintegund, stærð, þykkt, frágangi á köntum og útskurði fyrir vask og helluborð. Sendu okkur teikningu eða mál í gegnum formið „Fáðu tilboð í verkið“ og við sendum þér tilboð.
Hvernig fer ferlið fram?
Við sjáum um allt ferlið, frá mælingu til uppsetningar. Fyrst færðu tilboð. Síðan mælum við á staðnum, smíðum plöturnar í smiðjunni okkar í Garðabæ og setjum þær upp hjá þér.
Hversu langan tíma tekur verkið?
Afhendingartími er yfirleitt í kringum 1–3 vikur, en fer eftir umfangi verksins hverju sinni.
Hvernig á að hugsa um borðplötu úr náttúrustein?
Þurrkaðu af með mjúkum klút, volgu vatni og mildri uppþvottasápu. Forðastu slípiefni eins og Cif og súr hreinsiefni eins og edik, sítrónusafa, bleikiefni og ammoníak, því þau geta ætað eða deyft steininn. Þurrkaðu strax upp olíu, vín, kaffi og súran vökva. Notaðu glasamottur, pottaleppa undir heita potta og alltaf skurðarbretti. Við mælum með að bera vörn (þéttiefni) á náttúrustein á 6–12 mánaða fresti. Það á ekki við um kvartsstein. Allir viðskiptavinir fá leiðbeiningar um umönnun þegar borðplatan er afhent.
Hvenær má nota helluborð og vask eftir uppsetningu?
Kíttið í kringum helluborðið og límið við vaskinn þurfa sólarhring til að þorna. Því á hvorki að tengja né nota helluborð og vask fyrr en sólarhring eftir uppsetningu. Uppþvottavélin bíður þar til vaskurinn hefur verið tengdur.
Tengið þið helluborð og vask?
Nei, uppsetningarteymi okkar tengir hvorki helluborð né vask. Við ráðleggjum að fá fagmenn til að tengja tækin.
Smíðið þið annað en borðplötur?
Já, við sérsmíðum allt mögulegt úr náttúrustein. Þar á meðal eru handsmíðaðir bað- og eldhúsvaskar, bar- og afgreiðsluborð, arnar, sófa- og borðstofuborð, hillur og bakkar.
Get ég komið og skoðað steinana?
Já, þú ert velkomin(n) í Smiðsbúð 3 í Garðabæ. Opið er mánudaga til miðvikudaga 9–16, fimmtudaga 13–18 og föstudaga 9–16. Á laugardögum er hægt að bóka tíma hjá okkur í gegnum Noona appið.
Hvar á landinu takið þið að ykkur verk?
Við mælum og setjum upp stein hvar sem er á landinu.

